Stöndum vörð um allskonar!

27.sæti: Hugleikur Dagsson

There are no translations available.

hugleikur2

Óráðherra

Pete: Wait a minute. Who elected you leader of this outfit?

Ulysses: Well Pete, I figured it should be the one with the capacity for abstract thought. But if that ain't the consensus view, then hell, let's put it to a vote.

Svo hljóðar samræðubrot úr kvikmyndinni O Brother Where Art Thou? eftir Coen bræður.

Myndin er byggð á Ódysseifskviðu Hómers. En ég er bara að segja það svo ég hljómi ekki eins og ómenntaður lágstéttarlýður. En fylgjendur og fulltrúar Besta flokksins hafa verið sakaðir um slíkt á einhverri bloggsíðu.

Heh. Blogg. Gotta love it.

Allavega. Besti flokkurinn er margt, en ómenntaður er hann varla. Í röðum flokksins er einungis að finna gáfað fólk. Kímnigáfað fólk. Að hafa kímnigáfu er að hafa ímyndunarafl. Afl sem hefur ekki verið neitt sérstaklega áberandi í borgarstjórn hingað til. Ekki mikið af abstrakt hugmyndum þar. Þar horfir fólk ekki á The Wire. Bara CSI: Miami.

Þessvegna er Jón Gnarr kjörinn leiðtogi. Hann er okkar Ódysseifur og grín hans er Trójuhesturinn. Settur saman úr skrítlum og skrípalátum, en er í raun fullur af snilld. Heyrðu þarna byrjaði ég aftur að tala um Ódysseif. Vá hvað ég er menntaður.

Hulli.


Facebook