Áfengi er ekki gott og veldur miklu böli, nema bjór og léttvín og Campari og Martini og svoleiðis. Rósavín til dæmis hefur aldrei skaðað nokkurn mann. Sterkt vín er hættulegast, sérstaklega vodka, landi og kardimommudropar og spritt. En hvaðan kemur allt þetta vín? Það er enginn að spyrja þeirrar einföldu spurningar. Það er flutt inn og síðan dreyft í verslanir. Er það löglegt? Ég veit það ekki en ég held að það sé siðlaust. Það segir kona fænda mínns að minnsta kosti. Hann drakk sig líka í hel. Ég man vel eftir honum þegar við vorum litlir. Við lékum okkur oft saman og var þá oft hlegið mikið. Við fórum margar ferðirnar í Sundhöll Reykjavíkur, stukkum fram af stóra stökkbretinu eða toguðum typpin á okkur aftur-yfir punginn og á milli eistnanna og bjuggum til píkur. Svo löbbuðum við um og þóttumst vera stelpur.
En nú er frændi minn drukknaður, ekki í sundi heldur í Bakkusi. Barnslegur hlátur hans hefur þagnað. Var það honum að kenna? Ekki segir frænka mín það. Hún er reið og sár og vill að þeir séu dregnir til ábyrgðar sem myrtu frænda minn. En samt gerist ekkert. Stjórnvöld lofa og lofa en standa ekki við neitt. Allt er byggt á lygum. Fjöldi fólks drekkur sig í hel á hverjum degi. Það eru miklu fleiri sem drekka sig í hel en springa í loft upp. Hvað getum við gert? Besti flokkurinn er eini flokkurinn sem er með raunhæfar aðgerðir til lausnar. Við viljum banna fólki að drekka sig í hel og dreyfa ókeypis gosi meðal róna. Við viljum endurskoða allt kerfið og setja upp lausnarmiðaða ferla sem beina gögnum í möppur. Við ætlum að halda fundi þar sem fagaðilar fara yfir gögnin og leggja faglegt mat á þau. Við viljum allt uppá borðið, engin leyndarmál. Kannski þarf að hvetja róna til að drekka meiri bjór. Við viljum draga þá til ábyrgðar sem bera ábyrgð á innflutningi á áfengi. Við viljum efla eftirlitsaðila. Fólk er reitt. Það er gott. Reitt fólk hefur alltaf rétt fyrir sér. Besti flokkurinn skilur það. Þess vegna er mikilvægt að fara í sund og láta reiðina rjúka úr sér í gufunni. Við viljum skýr svör. Kannski er best að bera þetta undir þjóðina eftir að óháðir rannsóknaraðilar hafa lokið rannsókn. Það er eitt að drekka rauðvín með mat. Það er allt annað að sprauta sig með spritti. Hvað segir alþjóðasamfélagið? Er í lagi að drekka vodka ef maður borðar ost með því? Er hægt að sprauta sig með osti? Við viljum setja upp lýðræðislega dómstóla þar sem fólk safnast saman og fer inná heimili þeirra sem bera ábyrgð á ofdrykkju og leiðir þá allsbera niðurí bæ. Eftir að réttað hefur verið yfir þeim er þeim dýft í tjöru og svo velt uppúr fiðri. Aðeins þannig getur algjör sátt orðið í samfélaginu. Síðan fara allir í sund og hlæja saman og tala um Besta flokkinn og hvað allt sé á réttri leið. Vilt þú vera með í að byggja upp virkt og gegnsætt og lýðræðislegt lýðræði á Íslandi?





