Stöndum vörð um allskonar!

Atvinnuleysi

There are no translations available.

unemployedAtvinnuleysi fer nú vaxandi um allan heim sérstaklega í hinum þróuðu löndum. Þetta er ekki gott. Ég veit ekki ástæðuna en ég neita að trúa því að allir séu svona latir. Það eru alltaf til letingjar en þeir eru samt í minnihluta. En hvað er til ráða? Við getum ekki lagað atvinnuleysi með því að vísa öllum úr landi. Hvað með að hanna og þróa vélmenni til að vinna störfin á meðan fólk er í fríi? Vélmenni afkasta meiru en fólk, verða aldrei þreytt og eru aldrei með eitthvað vesen eins og launakröfur eða verkföll. Allir sem ég hef talað við eru hrifnir af vélmennum. “Geta þau talað’” spurði gamall maður mig í vesturbæjarlauginni um daginn. Ég veit það ekki. Það væri samt örugglega hægt að hanna slík vélmenni. Þannig vélmenni vil ég, sem vinna allan sólarhringinn og tala og syngja allan tíman. En það yrðu að vera Íslensk lög. Arí-dúarí-dúradei til dæmis eða Búggalú. Ég held að það væri gaman að fylgjast með glaðværum vélmennum syngja Búggalú og vinna hörðum höndum.

En við yrðum samt að passa að vélmennin yrðu ekki of klár. Við viljum ekki vélmenni sem er jafnklárt og Kári Stefánsson. Þau mega samt alveg vera klár í skák. Ég held samt að þetta sé engin raunveruleg hætta vegna þess að ef vélmennin verða klár átta þau sig fljót á því að þau hafa engar tilfinningar og þannig eru þau óæðri okkur. Þau verða aldrei reið. Ekki nema þau nái ekki að klára eitthvað verk sem þau eiga að gera. Það fer samt mikið eftir því hvort þau geta talað eða ekki. Hvernig eiga þau annars að sýna reiði? Ég veit það ekki.

 

Besti flokkurinn vill vélmenni til að létta byrðar einstaklinga úti í atvinnulífinu og til að styðja við atvinnuþróun. Allir geta farið í frí. Fleiri geta farið í sund og leyft sér að vera þar lengi. Sund er svo gott. Þar gleymir maður stað og stund í góðra vina hópi.

 

Besti flokkurinn vill að allir hafi vinnu en samt frekar að allir séu í fríi og geti leyft sér að keyra útá land. Það verður ekki vandamál því vélmennin sjá um vinnuna á meðan. Útá landi hittast allir og tala samn um Besta flokkinn og hvað sé gaman að vera Íslendingur og í fríi. Svo verður grillað og Besti flokkurinn skaffar pylsur, lauk, tómatsósu, sinnep og remúlaði. Og svo verður farið í ratleik. Svo fara allir heim til sinna fjölskyldna. Fjölskyldan er mikilvægasta eining samfélagsins. En allir verða samt að tala saman því tungumálið er hornsteinn menningarinnar. Við erum við af því við tölum um að við séum við.

 

Svona munum við slá tvær flugur í einu höggi; útrýma atvinnuleysi og auka frítíma þegnanna. Til þess að þetta megi verða að raunveruleika þaf góðan mann til góðra verka. Þessi maður er Jón Gnarr. Hann er ekki bar gáfaður og víðsýnn heldur skemmtilegur líka, góðhjartaður g samviskusamur. Ef þú vilt þetta og meira til settu þá X við Besta flokkinn vegna þess að hann er besti flokkurinn.

 

Facebook   
 

RSS áskrift