“Afhverju leggur fólk annað fólk í einelti, pabbi?” spurði 4 ára sonur minn mig um daginn. Þetta kom flatt uppá mig en ég svaraði því til að líklega væri þetta hegðunarmynstur leyfar af dýrslegu eðli okkar, arfur frá forfeðrum okkar sem murkuðu lífið hver úr öðrum í hinum sólríka og skjólgóða Neanderdal. Þessir forfeður okkar voru enn villtir apar sem notuðu kunnáttuna að kveikja eld helst til að grilla hvern annan yfir hægum eldi. Mannát var hluti af menningu þeirra ásamt áfengisfíkn. En þeir höfðu það sér til málsbóta að þeir voru enn dýr og ofurseldir dýrslegum hvötum sínum. Þá afsökun höfum við flest ekki. Við erum ekki apar heldur siðmenntaðir menn.
Einelti er ekki til gagns í mannlegu samfélagi. Það græðir enginn á einelti. Allir tapa, allir eru fórnarlömb, sérstaklega þeir sem verða fyrir því. Um daginn hitti ég konu í sundi sem var að segja mér að það væri alltaf verið að leggja hana í einelti útum allt. Hún varð fyrir einelti í vinnunni, í strætó og niðrí bæ á 17 júní. Mér fannst mjög leitt að heyra þetta. En þetta er staðreynd. Það er verið að leggja fólk í einelti um allt land, jafnvel þótt það hafi ekki gert neitt af sér. Þessi kona sagði mér líka frá manni sem hún þekkti sem var lagður í einelti á ferðalagi með fjölskyldunni í sumar. Það sem mér fannst ljótast var að það var fólk í fjölskyldunni sem tók þátt í eineltinu og jafnvel hvatti til þess. Ég hef líka rætt þetta við aðra sem hafa sömu sögu að segja.
Ég er að hitta fólk um allt land sem hefur lent í eða orðið vitni að einelti. Fólk er bæði reitt og hissa. Allir eiga það sameiginlegt að vera orðnir langþreyttir á þessu. Ég hitti gamlan mann sem horfði í augun á mér og spurði: “Afhverju, stöðva stjórnvöld þetta ekki, Jón?” Ég vissi ekki hverju ég átti að svara en ég vissi samt að fólkið í landinu okkar á rétt á svörum. Af hverju stöðva stjórnvöld ekki einelti? Eru þau kannski ófær um það? Ef svo er getum við treyst sömu aðilum til að stjórna landinu okkar á lýðræðislegan hátt? Ég held ekki. Einelti er ekkert annað en þöggun. Stjórnvöld hafa brugðist. Það vantar gagnsæi og ábyrga og málefnanlega umræðu. Þess vegna hefur orðið til nýtt stjórnmálaafl á Íslandi, flokkur sem þorir að dusta rykið af gömlum gildum og hefja lýðræðislampa sína á loft og varpa skíru ljósi á þau skúmaskot sem geyma motturnar sem ríkisstjórnin notar til að sópa undir og breyða yfir ráðaleysi sitt. Þessi flokkur heitir Besti Flokkurinn vegna þess að hann er betri en allir aðrir flokkar. Besti Flokkurinn vill allt best fyrir fólkið í landinu og vill að allir séu glaðir og með sínum fjölskyldum, öryggir inná sínum heimilum í opnu og lýðræðislegu samfélagi, fjarri firringu, ráðaleysi, spillingu og einelti.
Ég vildi að ég myndi eftir gamla manninum, hvað hann hét og hvernig hann leit út. En ég man það ekki. Ég man ekki einu sinni hvar ég hitti hann. Þetta var einhver bær útá landi. En ef ég myndi eftir honum myndi ég hringja í hann og biðja hann að endurtaka spurninguna. Svo mundi ég svara honum að það væri best í stöðunni að kjósa Besta Flokkinn. Hann er eini flokkurinn sem vill allt best fyrir gamla fólkið og fórnarlömb eineltis. Besti Flokkurinn vill slá skjaldborg um gamalt fólk, sérstaklega það gamla fólk sem skilgreina má sem fórnarlömb eineltis og þá er ég ekki að gera lítið úr þeim öldruðu einstaklingum sem líða fyrir öldrun sína. Það er líka slæmt. Einelti hefur það þó fram yfir öldrun að vera sálarmorð. Sá sem hefur orðið fyrir einelti ber þess aldrei bætur en sá sem verður fyrir öldrun hefur rétt á stuðningi og bótum fyrir sína öldrun. Það er virkt lýðræði.
Besta leiðin til að takast á við einelti er að tala um það. Við þurfum að hvetja gerendur til að ræða máli frekar en að taka málin í sínar hendur. Einelti ætti aðeins að beyta ef allt annað hefur brugðist.
Besti Flokkurinn lætur verkin tala. Ef þú hefur orðið fyrir einelti skaltu kjósa okkur. Þú skalt líka kjósa okkur ef þig grunar að þú, eða einhver sem þú þekkir, eigi eftir að vera fyrir einelti. Besti Flokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn á Íslandi sem er með aðgerðaráætlun gegn einelti. Við viljum taka á einelti þegar það gerist, þar sem það gerist með því að efna til lýðræðislegra borgarafunda með öllum sem eineltið snertir; þolendum, gerendum og óviðkomandi. Við viljum setja upp aðgerðaáætlun undir stjórn sálfræðinga og félagsfræðinga. En við viljum ganga ennþá lengra. Við viljum banna einelti með lögum. Við erum eini stjórnmálaflokkurinn sem er tilbúinn að ganga svo langt. Og við viljum jafnvel ganga ennþá lengra til að koma til móts við fórnarlömb og gerendur. Við viljum opna símaver þar sem þolendum og gerendum eineltis gefst kostur á að hringja í númer og tala við aðra gerendur og þolendur um hvað sé hægt að gera til að gera Ísland að besta landi í heimi þar sem er ekkert einelti. Má bjóða þér framtíð án eineltis? Má bjóða þér að kjósa Besta Flokkinn?





