Ég var í New York á dögunum að taka þátt í hinum svokallaða Black Friday þegar útsölurnar byrja. Þar má oft gera góð kaup. Bærinn var troðinn af fólki í verslunarhugleiðingum. Einhvernveginn fréttist það að ég væri í bænum og þá var hringt í mig frá Íslendingafélaginu og ég beðinn að halda ræðu, fyrir hönd Besta Flokksins í Central Park um kvöldið. Allir helstu fjölmiðlar sögðu frá þessu. Ég þráaðist við en lét svo til leiðast enda garðurinn fagurlega skreyttur á þessum árstíma. Það kom mér mikið á óvart hve margir mættu til fundarins og hve margir einstaklingar búa erlendis. Fólk kom fljúgandi alla leið frá Florida og Manitoba. Sumir höfðu jafnvel aldrei stigið fæti á Íslenska jörð en höfðu alltaf hugsað sér að koma þangað og nú eftir hrun krónunnar virtist takmarkið í sjónmáli. Hópur stúlkna frá Gimli Junior High færðu mér blómvönd. Ég vissi ekkert hvað ég átti að tala um en þá spurði ein stúlkan á bjagaðri Íslensku: “Jón, hvernig verður framtíðin á Íslandi?” Þá ákvað ég að rétta henni blómin aftur og stíga á svið undir dynjandi lófataki. Framtíðin er björt á Íslandi ef við veljum besta flokkinn til að móta hana. Besti flokkurinn er Besti Flokkurinn. Ef við veljum aðra flokka þá mun hagvöxtur hér dragast saman og viðskiptahalli aukast. Þetta lið er líka allt í einhverjum leynifélögum og orgíum. Ég þekki mann sem fullyrðir að Jóhanna Sigurðardóttir sé skráður meðlimur í Hells Angels og Aryan Brotherhood. Viljum við svoleiðis lið hér á landi? Ég veit það ekki. Það fer eftir ýmsu. Er Bjarni Ben virkilega með “Mara Salvatrucha” húðflúrað á hægri rasskinnina? Getur verið að Sjálfstæðisflokkurinn þyggi ólögleg fjárframlög frá erlendum glæpaklíkum? Hefur það verið kannað? Hvaða ítök hafa MS 13 á Íslandi í dag? Getur Bjarni Ben kannski svarað því?
Í framtíðinni verður allt öðruvísi en það er núna. Allir borða pillur og eru með tölvur alls staðar. Það verða tölvur sem eru klárari en menn og flugvélar sem fljúga sjálfar og það verður enginn í þeim. Og allt verður minna. Nema gosdrykkir sem verða seldir í 5 lítra umbúðum. Kínverjar munu ráða heiminum og allir sem eru í Vinstri Grænum munu klæðast grænum búningum eins og Kínverjar, með Bítlakraga. Kínverska sendiráðið kaupir Óperuhöllina við Reykjavíkurhöfn og stofnar Kínverska menningarmiðstöð þar. Fólk verður jafnvel með tölvur í kveikjurum. Það getur verið að auðkennislykillinn verði líka vasaljós og geti komið fljúgandi til manns ef maður tínir honum. Flutningaskip verða minni og minni útaf hlýnun jarðar. Tími stóru skemmtiferðaskipanna er liðinn. Og mannát verður leyft. Þar verðum við að segja stopp. Kjósum bjarta og glæsilega framtíð. Kjósum Besta Flokkinn. Má bjóða þér að eiga rómantískt stefnumót við framtíðina?





