Stöndum vörð um allskonar!

Framtíðin

There are no translations available.

Það eru ekki margir sem geta spáð fyrir um framtíðina. Nostradamus gat það. Og ég get það. Við erum líklega einu mennirnir sem hafa getað það, allavega þeir einu sem hafaMYND1eitthvað talað um það að þeir geti það. Ég var erlendis á dögunum og sá það sem skyldu mína að fara í sund. Ég fór á eitthvað resort þar sem átti að vera sundlaug en svo var engin sundlaug þar heldur bara heitir pottar sem reyndust svo ekkert vera neitt sérstaklega heitir. Hitinn úti var 35 gráður en pottarnir voru ekki svo heitir. En þeir voru með loftbólum þannig að ég skellti mér oní. Það var bara einn maður þarna fyrir utan mig, gamall kall. Ég kinkaði kolli til hans þegar ég fór oní en svo lokaði ég bara augunum og lét stressið líða úr mér í loftbólurnar. Þá spurði gamli maðurinn skyndilega: “What do you think the future of Iceland will be like?” Það kom á mig. “I am from Iceland,” sagði ég. Hann þagði og lygndi aftur augunum. Vissi hann að ég var frá Íslandi? Ef svo var hvernig vissi hann það? Það var ekki fyrren við vorum að kveðjast á bílastæðinu sem ég sá glitta í októberhefti Franfurter Rundschau blaðsins í sundtöskunni hans þar sem var viðtal við mig. Hann heitir Knut Finkelstein og er framtíðarfræðingur frá Frankfurt. Hann var heltekinn af viðtalinu við mig eins og margir Frankfurtbúar hafði hann áhyggjur af framtíð Íslands. Á ferðalögum mínum hef ég líka hitt fjölda barna og ungmenna. Þau hafa öll mikinn áhuga á Íslandi. Þau hafa öll lesið viðtalið við mig í Frankfurter Rundschau og spyrja öll um Besta Flokkinn. Ég verð alltaf hrærður þegar ég hitti þetta unga fólk sem hefur svona lifandi áhuga á öllu sem hrærist í kringum það. Ég fór í lítið fjallaþorp um daginn sem stendur við rætur eldfjalls. Á kaffihúsi þar hitti ég mann sem sagði mér að hann hefði borðað íslenskt lambakjöt þegar hann var á ferðalagi með fjölskyldu sinni um Bandaríkin. Þetta fannst mér vænt um að heyra. Ég var með töluvert af kokteilsósu á mér og gaf honum hana alla í kveðjuskyni. “Next time you have icelandic lamb dip it in this!”

Það vera rafmagnsbílar í framtíðinni. Og batterí duga lengur en núna. Og jólakúlur verða sjálflýsandi. Stjórnvöld hafa ekki gefið nægilegan gaum að framtíðinni. Það er ekki gott. Við svífum að feigðarósi eins og maður sem hefur bundið sig í veðurathugunarbelg og misst stjórn á honum. Allir sem á horfa vorkenna honum og finnst hann vitlaus. Íslensk stjórnvöld eru eins. Þeim hefur mistekist að skapa sátt í samfélaginu um framtíðina. Þau vita ekkert um framtíðina og finnst hún ekki skipta máli. Enginn ráðherra hefur haft hugrekki til að stíga fram og tala um framtíðina. Enginn nema Besti Flokkurinn er með framtíðina sem eitt af sínum gildum. Stefnumótun við framtíðina er gildi númer 7. Ég sé framtíðina og hún er björt að því tilskyldu að fólk kjósi Besta Flokkinn. Ef fólk gerir það ekki verður allt erfitt og leiðinlegt. Allir verða leiðir. Allt verður einkavætt og ríkið ræður meira og meira yfir öllum. Bjór verður bannaður aftur. Og líka hommar og bílar. Evrópusambandið mun gleypa okkur og okkur verður skipað að hætta allskonar sem okkur langar að gera, eins og að borða hrútspunga og hangikjöt. Ef við óhlýðnumst er öllum sama. En Brussel sendir hermenn til Íslands sem skjóta alla sem vilja ekki fylgja samþykktum EU. Fólk verður dregið útá götu og skotið fyrir framan húsið sitt og fjölskylduna fyrir að setja of mikið salt í matinn sinn eða taka í nefið. Nýfrjálshyggjan mun vaða uppi og allt verður til sölu. Þetta verður samfélag markaðshyggju og ríkisforsjár. Fólk fer að selja úr sér líffærin til að geta leyft sér örlítinn munað. Hvers virði er það að halda uppá afmælið sitt ef maður þurfti að selja úr sér nýrun til að geta það? Einskis. Og allir verða í eins fötum. Mig dreymdi draum um framtíðina. Ég var á fundi með stjórnvöldum. Allir helstu ráðherrar voru þar og líka Hitler, Mahatma Ghandi og Chuck Norris og það var verið að segja að þeir ættu að stjórna landinu. Svo man ég ekki meir nema ég var með ofurkrafta eins og í Matrix og gat labbað í gegnum veggi. En svo dreymdi mig annan draum um það að það væri verið að fórna börnum á Austurvelli til að blíðka fjármagnseigendur. Og allir gömlu stjórnmálamennirnir komu og fengu sér blóð að drekka. Jóhanna Sigurðardóttir drakk svoleiðis að blóðið fossaði yfir hana alla. Og svo var fullt af fólki grátandi í kring. Og Steingrímur J. Vigfússon var að borða mannakjöt. Og Idi Amin var með honum.

Þetta er ljót framtíðarsýn. Viljum við svona framtíð fyrir börin okkar? Viljum við láta éta þau upp til agna? Ekki Besti Flokkurinn. Við bjóðum stefnumót við framtíðina þar sem við göngum inní framtíðina og heilsum henni eins og nýjum vini, feimin í fyrstu og hikandi en svo meira og meira glöð og ánægð. Í framtíðarsamfélagi Besta Flokksins verða allir glaðir og fara ókeypis í strætó og sund og tala við aðra um Besta Flokkinn og hvað sé gott að vera í Besta Flokknum. Það verða engir sjúkdómar eða sársauki. Fólk deyr ekki heldur lifir að eilífu og ef einhvern vantar peninga þá fer hann bara í banka og lætur prenta peninga fyrir sig sér að kostnaðarlausu. Peningar verða samt meira til skrauts og gamans vegna þess að ef Aðgerðaráætlun okkar nær í gegn þá verður allt ókeypis. Má bjóða þér stefnumót við bjarta framtíð? Settu þá X við Besta Flokkinn.

Facebook   
 

RSS áskrift