Stöndum vörð um allskonar!

Hvalveiðar

There are no translations available.

atvinnuleysi

Allir hvalir eru vinir. Nema hákarlar. Þeir eru fiskar en samt mjög klárir eins og beljur eða hestar. Hvalveiðar eru vandamál. Það er slæmt. En þar sem aðrir sjá vandamál þar sjáumvið lausnir. Við viljum ábyrga nýtingu fiskistofna. Við viljum sjá meiri sjálfbærni í nýtingu allra auðlinda. Við viljum stöðva hvalveiðar.

Ég fæ fjölda símtala á hverjum degi. Fólk er að hringja í mig til að þakka mér fyrir Besta Flokkinn og hvetja mig til dáða. Ég fer oft að hágráta yfir öllum stuðningnum sem ég fæ. En á dögunum fékk ég skringilega upphringingu. Ég svaraði. Það var einhver á hinum endanum en hann sagði ekkert. Ég hlustaði. Andardráttur. “Halló? Hver er þetta? Viltu þakka mér eða hvetja mig? Ef þú hefur einhverjar spurningar um mig þá hvet ég þig til að lesa Frankfurter Rundschau.” Ég færði símann frá eyranu og ætlaði að fara að leggja á þegar hringjandinn ræskti sig og hvíslaði: “Af hverju hefur engum dottið í hug að temja hvali?” Svo lagði hann á.

Fyrir mörgum árum var ég á Mallorca. Þeir veiða ekki hvali. Samt eru þeir eyja eins og við. Besti Flokkurinn vil styrkja tengsl Íslands og Mallorca. Við höfum margt af þeim að læra til dæmis í ferðamennsku. Við viljum að allir virkir meðlimir Besta Flokksins geti flogið ókeypis til Mallorca ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að kynna sér menningu og ferðamannaþjónustu. Dvöl mín á Mallorca kennti mér að hvalveiðar borga sig ekki og eru siðferðislega rangar. Það græðir enginn á hvalveiðum, allir tapa. Ein hugmynd er að handsama hvali mannúðlega og flytja þá lifandi í sláturhús þar sem þeir væru svo aflífaðir samkvæmt viðurkenndum aðferðum. En er þetta raunhæft? Væri ekki nær að hætta hvalveiðum og temja hvali frekar til að gera allskonar? Afhverju ekki að prófa að láta þá draga flutningaskip? Það væri vistvæn sparnaðaraðgerð. Hvalamjólk er mjög næringarrík. Besti Flokkurinn vill láta mjólka hvali og gefa öllum ókeypis hvalamjólk. Fiskveiðar eru annar handleggur. Hvalir eru líklega eina fisktegundin sem hægt er að temja til að veiða aðra fiska. Er hægt að þjálfa hvali og jafnvel aðra fiska til að hreinsa allt drasl af hafsotninum? Því ekki að leggja öllum togurum og breyta þeim í leikskóla byggða á Hjalla stefnunni? Geta vélstjórar ekki hugsað um börn? Getur háseti ekki verið fóstra? það vantar fleiri karlmenn á leikskóla. Besti Flokkurinn vill algjört kynjahlutfall alls staðar. Dýraþjálfarar okkar munu þjálfa hvali til að fara og veiða aðra fiska, safna þeim í munninn á sér og spýta þeim á land. Jónas í hvalnum náði að lifa vikum saman í hvalsmaga. Þetta þarf að rannsaka. Geta hvalir flutt fólk? Vill fólk ferðast með hvölum? Þetta eru bara nokkrar af fjölmörgum hugmyndum okkar. Allir verða að kjósa Besta Flokkinn. Það er best!

 

 

Facebook   
 

RSS áskrift