Stöndum vörð um allskonar!

Icesave

There are no translations available.

Icesave er flókið mál. Það er ekki gott. Þess vegna er mikilvægt að staldra við og skoða málið á lýðræðislegan hátt. Við þurfum þjóðaratkvæðagreiðslu. En það er bara byrjunin. Fyrst þarf að opna skjalastofu sem er aðgengilegt öllum. En áður en við gerum það vill besti Flokkurinn halda fund á Þingvöllum þar sem allir hittast og tala saman um Besta Flokkinn, Icesave og hvað sé best. Allir fá grillaðar pylsur, krakkarnir fá djús og svo verður ókeypis bjór fyrir unga fólkið. Við þurfum að tala saman. Á þessum fundi verður fyllsta kynjajafnréttis gætt. Við megum ekki gleyma því að það eru hin karllægu gildi sem hafa komið okkur í þá stöðu sem við erum nú í. Besti Flokkurinn hefur engin karllæg gildi í sínum gildum. Þegar þjóðin hefur talað er allt skrifað niður, prentað á glærur og sett í möppur, til að tryggja gegnsæi. Til þess að þetta sé gerlegt þarf að setja allt uppá borðið. Biskupinn þarf að vera með bænastund á meðan Besti Flokkurinn stendur fyrir kertafleytingu. Við viljum stofna óháða rannsóknarnefnd, skipaða meðlimum Besta Flokksins og aðra nefnd sem skipuleggur Þjóðfund í Vetrargarðinum í Smáralind. Meðlimir Besta Flokksins tóku ekki þátt í góðærinu og munu ekki taka þátt í runinu heldur. Þegar allt er komið uppá borðið munum við skipa einhverjum útlendingum sem skilja ekki Íslensku að taka öll gögn, prenta þau á glærur og gata þau og setja í glærar möppur. Þannig tryggjum við bæði hlutleysi og gegnsæi. Þá fyrst er hægt að opna Icesave-stofu við hátíðlega athöfn. Við viljum fá forsetann til að vera með okkur og gamla forsetann til að vera verndari stofunnar ef einhver mundi vilja skemma hana. Við viljum finna skemmtilega lausn sem þjóðin getur sætt sig við.

Á ferðum mínum um heiminn hef ég hitt mikið af gömlu fólki. Besti Flokkurinn vill hlusta meira á gamalt fólk sem því miður er oftar en ekki beitt þöggun, sem er ekkert annað en ein tegund af einelti. En hver er stefna okkar varðandi Icesave? Hún er skemmtileg ólíkt stefnum annara. Við viljum semja uppá nýtt við Breta, Norðmenn og Hollendinga. Við erum með þrjár tillögur og viljum setja þær fram sem “take it or leave it” tilboð:

 

1. Við viljum safna saman öllu gulli á landinu og láta setja það inní laxa. Þetta köllum við GULLLAXINN. Þá geta kröfuhafar keypt sér veiðileyfi og tekið þátt í skemmtilegum leik í leiðinni. Svo mega þeir eiga það gull sem þeir ná.

 

2. Við greiðum Icesave skuldina ekki til kröfuhafa heldur notum andvirðið til að hjálpa munaðarlausum börnum um allan heim. Við stofnum Icesave sjóð og rekum hann í 100 ár. Þannig breytum við Icesave úr neikvæðu í jákvætt og skemmtilegt og öllum líður vel.

 

3. Greiðum Icesave með frjálsum framlögum, allir sem vilja borga mega það.

 

Þetta eru aðeins nokkrar af fjölmörgum tillögum okkar. Má bjóða þér skemmtilegar lausnir og gegnsæja framtíð? Kjóstu þá Besta Flokkinn!

 

Facebook   
 

RSS áskrift