Stöndum vörð um allskonar!

Landkynning

There are no translations available.

Ég rakst á gamalt eintak af National Geographic tímaritinu um daginn. Þetta var sérstök útgáfa sem var tileinkuð 50 áhugaverðustu stöðum í heimi að mati blaðamannanna. Ég hélt að Ísland hlyti að vera einn af þessum stöðum en svo var ekki. Það var mjög leiðinlegt. Hvernig stendur á þessu? Íslensk landkynning hefur brugðist. Minna og minna fé er varið til landkynningar. Það er slæmt. Við verðum að kynna Ísland, íslenska menningu, náttúru, lopapeysur og matargerð. Það er íslenskur maður sem hefur árum saman ferðast um Ameríku á kostnað ríkissins og kynnt íslenskt lambakjöt. Hann heldur veislur og mætir í veislur og talar við alla sem hann hittir um lambakjöt. Hann er alltaf með kjöt með sér og leyfir fólki að smakka. Allir vita að íslenskt lambakjöt er besta kjöt í heimi.

Allir eru að tala um það í Ameríku. Alltaf þegar ég er í Ameríku og segist vera frá Íslandi segir fólk alltaf “lamb meat!” Það er þessum duglega manni að þakka. Ég vil gera styttu af honum þar sem hann er klyfjaður lambaskrokkum að tala við ameríska miðaldra húsmóður. Og ég vil sjá fleiri svona menn og senda þá útí heim. Á ferðum mínum um heiminn hef ég veitt því athygli hversu fáir útlendingar virðast þekkja ýsuna og borða hana. Ég vil ráða mann til að ferðast um heiminn, halda og mæta í veislur og tala um ýsu við alla. Og ég vil líka að hann sé alltaf með ýsu á sér. Þetta verður dýrt en þetta á líka eftir að skila sínu. Það eru til dæmis allir að tala núna um skyr í útlöndum. Ég veit ekki afhverju en ég held að það hljóti að vera einhver maður sem er búinn að keyra um allt með skyr og tala um það við alla sem hann hittir. Hann fær Fálkaorðuna. Það er loforð. Það þarf að gera betur. Þessir menn þurfa að fá meiri pening til að þeir geti haldið stærri veislur og kynnt meira lambakjöt. Besti Flokkurinn vil standa fyrir Íslenskum dögum í andyri Rockefeller Center. Og við viljum ráða mann til að standa í Central Park með skylti sem segir öllum að fara í Rockefeller Center og fá sér lambakjöt og ýsu. Og það verður ekki bara soðin ýsa heldur líka ýsa í raspi. Allir fremstu kokkar landsins elda ofaní mannskapinn. Ekkert verður til sparað til að gera þetta glæsilegt. Allir sem klára matinn sinn fá skyr og krækiber. Ef fólk er þyrst getur það fengið kók eða bjór með íslensku vatni til að finna muninn. Allir kallar fá Brennivín.

Þetta verður til þess að allir verða glaðir og fara að hugsa um Ísland og tala um það við alla aðra og svo koma þeir allir til Íslands. Og þetta er bara byrjunin. Besti Flokkurinn ætlar að ráða vini sína, sem hafa ekkert að gera og nenna ekki að vinna neina venjulega vinnu, til að fara og ferðast um allan heim og kynna kokkteilsósu, ORA grænar baunir, GUNNARS mæjónes og SS pylsur. Við munum opna heimasíðuna icelandisbest.com. Má bjóða þér blómlegan ferðamannaiðnað? Kjóstu þá Besta Flokkinn!

 

 

Facebook   
 

RSS áskrift