Stöndum vörð um allskonar!

Ríkisútvarpið

There are no translations available.

kim_il_ruvMikil umræða hefur verið um málefni Ríkissjónvarpsins að undanförnu. Það er gott. Umræða er skemmtileg en hún má samt aldrei verða neikvæð. Neikvæð umræða er ekki uppbyggileg og leiðir til eineltis. Þar tapa allir.

Ríkisútvarpið er sjónvarpsstöðin okkar. Um það eru allir sammála. Allir meðlimir Besta flokksins horfa á Ríkissjónvarpið og hlusta á Ríkisútvarpið og eru glaðir. Sumir horfa á skemmtilega þáttinn um hrakfallabálkinn og og grallarann Martein. Þá er oft mikið hlegið. Aðrir horfa á Útsvar. Þar er mikil spenna og landshlutar takast á og oft erfitt að sogast ekki að skjánum. Fyrir framan Söngvakeppni Ríkissjónvarpsins sameinast fjölskyldan og gleymir um stund hinu niðurbrjótandi kynslóðabili. Í Söngvakeppninni eru allir jafnir og syngja með.

Margir vilja breyta Ríkissjónvarpinu. Það er ekki gott. Það er líka erfitt. Breytingar eru slæmar og valda óvissu og vanlíðan. Nú ríður á að viðhalda stöðugleika og standa vörð um Ríkissjónvarpið okkar sem ríkið bjó til fyrir okkur. Fólk þarf að hlæja meira. Þess vegna þarf að endursýna Spaugstofuna oftar. Það er svo gott að sjá lífið, og helst hið pólitíska líf, í spéspegli. Hlátur er læknandi og lengir lífið. Ríkissjónvarpið þarf að gefa efni sitt út á VHS spólum svo fólk geti líka hlegið í útilegum og jafnvel tekið myndbandstækið með sér í sund. Þar geta allir hlegið saman í heita pottinum.

Vösk sveit fyrrverandi stjórnmálamanna leggur nótt við dag svo almennir borgarar geti slakað á fyrir framan sjónvarpstækið sitt. Enginn hefur jafn mikið vit á sjónvarpi og fyrrverandi stjórnmálamenn. Hvíld er góð. Það vita allir. Eftir viðburðaríkan dag fara meðlimir Besta flokksins í sund og synda innan um aðra einstaklinga. Svo fara þeir í heita pottinn og láta stressið líða úr sér í heitu vatninu. Svo fara þeir heim og horfa á Sjónvarpið. Allir eiga sér uppáhalds þulu. Ef þulan þeirra kemur ekki geta þeir ekki sofnað. Þá eru þeir andvaka og fara aftur í sund. Það er ekki gott. Einstaklingar ættu ekki að vera mikið andvaka og hugsa neikvætt. Þeir eiga að sofa. Allt er gott og allir eru glaðir. Nýungar valda kvíða. Gott ráð við kvíða er að sjóða ýsu og kartöflur og stappa það saman með coctailsósu. Svo er gott að horfa á Fréttir. Þær hafa trúverðugleika sem venjulegar Íslenskar fjölskyldur skortir svo oft. Allir treysta sjónvarpinu sínu. Þótt allt virðist með kyrrum kjörum þegar horft er útum gluggann er heimurinn samt að fara til helvítis. Þetta vita meðlimir Besta flokksins og fylgjast því vandlega með öllum fréttum. Þeir klessa andlitunum uppað skjánum og stara áhyggjufullir í augu fréttalesaranna í gegnum glerið og vona að Áramótaskaupið komi fljótt svo þeir geti aftur farið að hlæja.

Yfirmenn Ríkissjónvarpsins undirbúa nú nýjan skemmtiþátt í anda Top of the Pops. Þar munu ýmsir stjórnmálamenn herma eftir Spaugstofunni. Til þess að þessi þáttur verði góður þarf að tryggja þeim vinnufrið. Ríkisútvarpið þarf styrkan stjórnanda í brúnna. Margir vilja sjá Halldór Ásgrímsson sem útvarpsstjóra. Hann kann listina að svæfa fólk með augnaráðinu einu saman. Sofandi líður öllum vel. Það vita allir. En er það raunhæft að ráða svo ungan og óreyndan mann? Hvað með Lúðvík Jósepsson eða Geir Hallgrímsson? Hvað hefur Halldór framyfir þá? Þessi mál þarf að skoða ofaní kjölinn áður en ákvörðun er tekin.

Við ruggum ekki bátnum í ólgusjó. Má bjóða þér ýsu, kartöflur og coctailsósu? Má bjóða þér að vera hluti af jákvæðu lýðræðisafli og allskonar? Segðu þá “já!” við Besta flokkum! Segðu “já!” við allskonar sósum.

Facebook   
 

RSS áskrift