Sundlaugar eru það besta sem við eigum. Allir geta farið í sund þar sem gáfaðir og ríkir synda um með þeim sem eru ljótir og heimskir. Fátækt fólk fer í heita pottinn með ríku fólki sem ræðir opinskátt við þroskahefta og dauðvona. Þetta er gott. En er þetta nóg? Viljum við ekki eitthvað meira? Nægja okkur kaldir pottar sem við getum skellt okkur í eftir að hafa setið dagspart í heitum potti? Það held ég ekki. Við þurfum leikhús. Ég vil sundlaugar sem eru líka leikhús þar sem fólk getur synt um í volgu vatni og notið skemmtiatriða á meðan. Ég vil galdramenn við heitu pottana og mæma í sturtuklefunum. Þetta er lifandi leikhús. Við sundbrautirnar sjálfar vil ég sjá metnaðarfullar leiksýningar þar sem ekkert verður til sparað og allt verður ókeypis. Hugsanlega gætu sundgestir tekið þátt í sýningunum. Hver veit nema leiklistarsnillingur leynist meðal sundmanna? Sundleikhús! Hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum. En þetta er aðeins byrjunin.
Ég vil láta setja upp ákveðinn búnað í allar sundlaugar sem mundi sjá um að virkja og stjórna gosbrunnasýningum! Þar myndu gosbrunnar gjósa í takt við vinsæl dægurlög. Ísland er land þitt færi vel í svona sýningu ekki síst ef Egill ólafsson syngi það á staðnum. Besti flokkurinn vill aðeins það besta fyrir alla. Í svona sundlaug yrðu allir glaðir því það væri alltaf eitthvað í gangi sem örvaði skynfæri fólks. Skynfæri er glettilega líkt kynfæri. Kannski væru allir allsberir. Þannig gætum við sparað ríkinu ókeypis sundskýlur og bikini. Þeim sem ekki líkaði þetta gætu farið í sjósund. Allt annað yrði ókeypis. Margir hafa líka varpað fram þeirri hugmynd að hafa seli í sundlaugum. Það væri gaman fyri alla, sérstaklega börn sem gætu synnt með selunum auk þess sem þeir væru tignarlegir á að horfa. Egill Ólafsson gæti æft þá í að stökkva í gegnum hringi. Það myndi eflaust vekja mikla lukku. Þessar og aðrar hugmyndir eru ágætar. En við megum samt ekki gleyma þeim sem leita í sundlaugarnar sér til slökunar, sérstaklega eldra fólk. Besti flokkurinn er með ráð við því. Við viljum láta gera sundlaug eingöngu fyrir ellilífeyrisþega útá Laugarnesi. Þeim væri bannað að koma í aðrar laugar. Amma mín var gömul kona og talaði oft um það hvernig það væri. Hún var ekki kynferðislega virk enda fædd átjánhundruðogeitthvað.
Sundlaugar eiga að vera samkomustaðir. Þær eru samkomustaðir vegna þess að þar kemur fólk saman. En afhverju eru þær ekki sameiningarstaðir? Það vantar gegnsæi. Virkt lýðræði er á undanhaldi. Enginn vill mannát en samt eru allir svangir. Besti flokkurinn er eini flokkurinn á Íslandi sem býður ókeypis handklæði og hvetur til opnunar sérstakrar Sundstofu þar sem fólk getur komið og talað við annað fólk um sund, Besta flokkinn og gildi þess að vera í Besta flokknum. Lengi lifi allskonar!





