Stöndum vörð um allskonar!

Vatnaríkið Reykjavík

There are no translations available.

fountainMikil umræða hefur átt sér stað meðal þjóðarinnar undanfarið um mikilvægi þess að reisa í Reykjavík eitthvað tilgangslaust mannvirki eins og sjá má í stórborgum erlendis. Allir kannast við píramídana í Egyptalandi, Frelsisstyttuna í New York og Effelturninn í París. Ýmsar tillögur hafa komið fram. Allir virðast hafa skoðun á þessu. Flestir vilja reisa styttu af Björk Guðmundsdóttur í Engey. Það er góð hugmynd og skemmtileg tilbreyting fyrir fólk, sérstaklega erlenda gesti. Björk er persónugervingur Íslands um allan heim og góður fulltrúi okkar. Styttan væri í svipuðum stíl og frelsisstyttan, bara stærri. Margir vilja hafa hana allt að helmingi stærri. Í augunum væru risastórir ljóskastarar sem hreyfðust eftir ákveðnu kerfi. Hugsanlega væri hægt að snúa höfðinu og beina þannig ljósi á allskonar. Með þeim mætti til dæmis lýsa upp miðbæinn á Menningarnótt eða eitthvað svoleiðis. Styttan væri útbúin risavöxnum hátölurum með hreyfiskynjurum sem færu sjálfkrafa í gang ef einhver hreyfing væri í kringum hana. Hún myndi þá snúa höfðinu að hreyfingunni og tala með rödd Bjarkar og tilkynna allskonar staðreyndir um Ísland eða Reykjavík á ensku, dönsku og þýsku. Styttan myndi líka taka við af aðvörunarflautum Almannavarna og tilkynna ef okkur væri einhver hætta búin. Þá myndi hún tala með rödd Björgvins Halldórssonar og segja öllum hvað væri í aðsigi: “Góðir Íslendingar, búið ykkur undir jarðskjálfta!” eða “Farið ekki langt, því hér framundan er eldgos í Bláfjöllum.”

En er þetta raunhæft? Ég held ekki. Frelsisstyttan er 93 metrar á hæð. Bjarkarstyttan er áætluð 150-200 metrar. Þetta er óraunhæft. Er þetta stytta eða hreinlega vélmenni? Kostnaðurinn yrði of mikill. Viðhaldið yrði okkur ofviða. Og enginn virðist hafa gert ráð fyrir því að hugsanlega vilji Björk ekki svona vélmenna-styttu af sér. Sú hugmynd sem heyrst hefur að hugsanlega væri hægt að reisa styttuna á laun og afhjúpa hana á afmælisdegi Bjarkar, henni til heiðurs er óraunhæf. Nær væri að gleyma þessu bara og reisa þess í stað stærsta gosbrunn í heimi í höfninni í Reykjavík. Öflugar dælur myndu dæla sjó 300 metra í loft upp. Það væri eflaust tignarlegt á að líta. Dælurnar væru stillanlegar, vatnið þyrfti ekki endilega að fara beint uppí loftið. Það væri líka hægt að dæla því til hliðar og í boga eða jafnvel snúa dælunni í hringi. Svo mætti koma fyrir annari dælu í Tjörninni sem væri minni. Margir vilja sjá svona gosbrunn útfrá Bessastöðum sem myndi dæla sjó yfir Reykjavík eða jafnvel uppí Heiðmörk. Smátt og smátt mætti fjölga gosbrunnum. Verkfræðingar segja það mögulegt að dæla vatni allt að 700 metra í loft upp! Besti flokkurinn vill efna til samkeppni og gera þennan draum að raunveruleika. Má bjóða þér að vera með í pólitísku frumkvöðlaafli? Gerum Reykjavík skemmtilegri. Áfram Reykjavík, allskonar menningar Reykjavík!

 

 

 

 

 

Facebook   
 

RSS áskrift