Stöndum vörð um allskonar!

Vinátta!

There are no translations available.

friends“Það eru margir kallaðir, en fáir góðir vinir” sagði gamall maður við mig í heita pottinum um daginn. Það er mikið til í þessu og vinátta er líka mikilvæg. Mér finnst alltaf óþægilegt að tala við gamla menn í heita pottinum. Ég veit ekkert hvað ég á að horfa á meðan ég tala við þá. Það er auðvelt þegar maður talar við konur. Maður getur horft framan í þær eða á brjóstin á þeim. Þegar þær fara uppúr getur maður horft á rassinn á þeim. Það er ekki þannig með gamla menn. Þeir eru oft með brjóst en einhvern veginn langar mann ekki að horfa mikið á þau. Maður getur bara horft framan í þá sem getur verið leiðinlegt til lengdar. Maður getur ekki horft á rassinn á þeim þegar þeir fara uppúr. Maður getur það en gerir það ekki.

 

Sumir gamlir menn eru ekki einu sinni með rass heldur er eins og bakið á þeim nái alla leið niður á læri. Þeir eru með langt bak. Stundum þegar gamlir menn fara uppúr pottinum pompar pungurinn á þeim niður undan skýlunni. Það getur verið fyndið ef maður er ekki einn um að taka eftir því. Það er nóg að það séu tveir. Ef maður er einn um að taka eftir því er það bara ógeðslegt og ekkert fyndið. Og þetta held ég að sé inntakið í orðum gamla mannsins þegar hann fór með þennan gamla málshátt: “Það eru margir kallaðir, en fáir góðir vinir.” Eftir að ég var búinn að horfa framan í hann í nokkrar sekúndur stóð ég upp og lét eins og ég væri að kafna úr hita. Ég fór í laugina og tók nokkur röskleg sundtök. Eftir smá stund hafði ég gleymt andliti gamla mannsins. En orðum hans gleymdi ég ekki. Eftir sundið fór ég í gufuna og lagðist á bekkinn. Ég lygndi aftur augunum og lét hugann reika. Skyndilega hrökk ég upp því mér fannst gamli maðurinn sitja við hlið mér og ég heyrði hann endurtaka málsháttinn. Ég spratt á fætur og settist upp. Gamli maðurinn var kominn. Ég snerti hann til að fullvissa mig um að ég væri ekki mð ofskynjanir. Hann var þarna. Og það varð til þess að við fórum að tala saman. Hann sagði mér frá æsku sinni og starfi sem vöruflutningabílstjóri í Keflavík. Ég sagði honum frá Besta flokknum og hvað væri gaman að vera í Besta flokknum. Og áður en við vissum af vorum við báðir byrjaðir að skellihlæja. Kynslóðabilið hafði verið þurrkað út. Þá kvaddi hann og fór. Þegar hann var farrinn fór ég að velta því fyrir mér hvort ég hefði hlegið svona mikið hefði ég verið einn. Ég efast um það. Það er satt sem gamli maðurinn sagði. Maður er manns gaman. Vináttan skiptir svo miklu máli. Þess vegna eru allir svona góðir vinir í Besta flokknum vegna þess að vináttan er eitt af höfðuð gildum flokksins. Má bjóða þér að taka þátt í skemmtilegu starfi með fólki sem er sannir vinir þínir? Vertu þá með í innra starfi Besta flokksins þar sem fólk er óhrætt við að ræða við hvert annað um besta flokkinn. Já, við getum það!

 

Facebook   
 

RSS áskrift